Fara í efni

Breyting á lánareglum 1. júlí 2017

Frá og með 1. júlí nk. verður ekki miðað við framlögð verðmöt við mat á veðhlutfalli eigna hjá lífeyrissjóðnum, heldur eingöngu fasteignamat eða kaupsamninga. Þá verður frá og með 1. júlí gerð krafa um 1. veðrétt fari veðhlutfall umfram 75% af fasteignamati eignar, þrátt fyrir að kaupsamningur liggi fyrir.

Nýjar lánareglur má nálgast hér.