Fara í efni

Grindavík: Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands rýmkar lánþegaskilyrði

Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands hefur gefið út yfirlýsingu varðandi tímabundna rýmkun á greiðslubyrðarhlutfalli og veðhlutfalli fyrir einstaklinga í Grindavík. Í yfirlýsingu Seðlabanka Íslands segir:

Í ljósi sérstakra aðstæðna sem blasa við í Grindavík hefur fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands ákveðið að rýmka tímabundið lánþegaskilyrði þeirra einstaklinga sem áttu íbúðarhúsnæði í Grindavík 10. nóvember 2023.

Hámark greiðslubyrðar verði 40% af ráðstöfunartekjum og hámark veðsetningarhlutfalls verði 85% fyrir þessa einstaklinga við næstu kaup þeirra á íbúðarhúsnæði.

Yfirlýsing fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands 22. febrúar 2024