Fara í efni

IcelandSIF, samtök um ábyrgar og sjálfbærar fjárfestingar stofnuð

Samtökin IcelandSIF voru stofnuð í gær, 13. nóvember, og var Brú lífeyrissjóður einn af 23 stofnaðilum samtakanna. Tilgangur samtakanna er að efla þekkingu fjárfesta á aðferðafræði sjálfbærra og ábyrgra fjárfestinga með því að skapa sjálfstæðan vettvang fyrir umræður og fræðslu. Stofnaðilar samtakanna eru auk Brúar lífeyrissjóðs: Almenni lífeyrissjóðurinn, Birta lífeyrissjóður, Festa lífeyrissjóður, Frjálsi lífeyrissjóðurinn, Gildi lífeyrissjóður, Íslenski lífeyrissjóðurinn, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, Lífeyrissjóður verslunarmanna, Lífsverk lífeyrissjóður, Stapi lífeyrissjóður, Arion banki, Íslandsbanki, Landsbanki, Kvika banki, Vátryggingafélag Íslands, Vörður tryggingar, Tryggingamiðstöðin, Júpiter rekstarfélag, Íslandssjóðir, Landsbréf, Stefnir og Gamma Capital Management.

Fyrsta stjórn samtakanna er skipuð Arnóri Gunnarssyni VÍS, Davíð Rúdólfssyni Gildi, Hrefnu Sigfinnsdóttur Landsbanka, Jóhanni Guðmundssyni Lífeyrissjóði verslunarmanna, Kristínu Jónu Kristjánsdóttur Íslandssjóðum og Kristjáni Geir Péturssyni Lífeyrissjóðnum Birtu.