Fara í efni

LSK í viðræðum um sameiningu við B deild

Stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar (LSK) og stjórn Brúar lífeyrissjóðs hafa samþykkt að hefja viðræður um sameiningu LSK við B deild sjóðsins. Það felur í sér að eignasöfn B deildarinnar og eignasafn LSK verða sameinuð í eitt safn, að skuldbindingum hvers réttindasafns, skuldbindingar LSK og annarra launagreiðenda verði haldið aðgreindum og að réttindi og réttindaávinnsla sjóðfélaga haldist óbreytt. Bæjarstjórn Kópavogsbæjar, Starfsmannafélag Kópavogsbæjar og Kennarasamband Íslands hafa fjallað um málið og eru hlynnt sameiningu sjóðsins við B-deild Brúar lífeyrissjóðs.