Fara í efni

Uppgjör vegna breytinga á A deild

Fyrir liggur uppgjör fyrir tímabilið 1. janúar til 31. maí 2017 vegna breytinga á A deild sjóðsins en samkvæmt því greiða launagreiðendur eftirfarandi framlög til sjóðsins:

• 9.958.717.284 kr. í jafnvægissjóð sem ráðstafað skal til að koma áfallinni stöðu A-deildar Brúar í jafnvægi miðað við 31. maí 2017

• 27.260.749.984 kr. í lífeyrisaukasjóð til að mæta framtíðarskuldbindingum vegna lífeyrisauka þeirra sjóðfélaga sem eiga rétt á honum

• 3.015.817.552 kr. í varúðarsjóð sem ætlað er að styðja við lífeyrisaukasjóð.

Jafnvægissjóðnum er skipt hlutfallslega á launagreiðendur eftir iðgjaldaskilum þeirra frá stofnun sjóðsins til 31. maí 2017.   Lífeyrisaukasjóðnum og varúðarsjóðnum er skipt hlutfallslega á launagreiðendur eftir iðgjaldaskilum þeirra fyrir tímabilið 1. janúar 2017 til 31. maí 2017.  Rökin fyrir þessari skiptingu er að hefði ekki komið til lagabreytinga í desember 2016 hefði mótframlag launagreiðenda í A deild verið hækkað í allt að 21% til að koma tryggingafræðilegri stöðu sjóðsins í jafnvægi. Því hefðu launagreiðendur sem borguðu iðgjald til sjóðsins á árinu 2017 borið hækkunina alfarið. Launagreiðendur sem greiða hærra mótframlag mánaðarlega vegna lífeyrisaukaframlags, sem nemur nú 4,5%, er ekki reiknuð hlutdeild í lífeyrisaukasjóðnum. 

Sjóðurinn sendir út á næstu dögum reikninga og uppgjörsskjöl til launagreiðenda en eindagi framlaganna er 31. janúar 2018.

Skýrsla um tryggingafræðilega athugun A deildar m.v. maí 2017

Árshlutareikningur A og V deildar Brúar lífeyrissjóðs m.v. 31. maí 2017