Fara í efni

Vextir lækka á óverðtryggðum lánum frá 1. janúar

Vextir á óverðtryggðum lánum munu lækka niður í 5,53% frá 1. janúar næst komandi. Vextir á óverðtryggðum lánum eru nú 5,76%  og gilda frá 1. júlí til 31. desember.  Vextir óverðtryggðra lána breytast tvisvar sinnum á ári, þann 1. janúar og þann 1. júlí ár hvert, nema að stjórn sjóðsins ákveði annað. Vextir á verðtryggðum lánum haldast óbreyttir og eru 3,6%.