Fara í efni

Fjárfestingarstefna fyrir 2018

Fjárfestingarstefna Brúar lífeyrissjóðs fyrir árið 2018 var samþykkt á stjórnarfundi þann 26. nóvember síðast liðinn. Framsetning á stefnunni er með öðrum hætti en áður þar sem tekið er tillit til breytinga í lögum og reglum Fjármálaeftirlitsins um eignaflokkun verðbréfa. Nýr kafli er í stefnunni sem fjallar um siðferðisleg viðmið í fjárfestingum en unnið er að breytingu í reglum eignastýringar þannig að við mat á fjárfestingarkostum verði litið til þess hvort útgefendur verðbréfa hafi mótað sér stefnu varðandi umhverfismál, samfélagslega ábyrgð og góða stjórnarhætti og hvort rekstraraðilar sjóða hafi sett sér stefnu um ábyrgar fjárfestingar. Horft er þá aðallega til viðmiðunarreglna Sameinuðu þjóðanna um ábyrgar fjárfestingar. Brú lífeyrissjóður er einn af 23 stofnfélögum að félagasamtökunum IcelandSIF, en tilgangur félagsins er að auka umræður og efla þekkingu fjárfesta á aðferðafræði sjálfbærra og ábyrgra fjárfestinga.

Fjárfestingarstefna eignasafna A og V deildar er sem fyrr sameiginleg. Helsta breytingin frá stefnu fyrra árs er aukning í fasteignaveðtryggðum lánum til sjóðfélaga en hlutfallið milli ára hækkar úr 6% í 10%.  Hlutfall sértryggðra skuldabréfa og skuldabréfa sveitarfélaga eykst jafnframt lítillega en hlutfall ríkisbréfa heldur hins vegar áfram að dragast saman. Stefnt er að því að auka við vægi erlendra eigna smám saman.

Fjárfestingarstefna B deildar er lítið breytt á milli ára og er sem fyrr varkár, en markmiðið er að ekki reyni frekar á bakábyrgð sveitarfélaganna. Í fjárfestingarstefnu deildarinnar er nú tekið tillit til eigna Eftirlaunasjóðs Reykjanesbæjar en sá sjóður sameinaðist inn í B deild Brúar lífeyrissjóð miðað við 1. janúar 2017.

Hér má sjá fjárfestingarstefnu Brúar lífeyrissjóðs í heild sinni.