Fara í efni

Undirbúningur hafinn vegna greiðslu hálfs lífeyris

Von er á reglugerð frá félags- og jafnréttismálaráðherra um sveigjanlega töku ellilífseyris og heimilisuppbótar sem á sér stoð í breyttum lögum um almannatryggingar nr. 100/2017. Þar er kveðið á um heimild til greiðslu hálfs ellilífeyris til handa þeim sem náð hafa 65 ára aldri og eiga rétt á ellilífeyri úr skyldubundnum lífeyrissjóðum.

Þessi breyting er eðlilegt tímanna tákn og fagnaðarefni sem slík. Hún er til marks um breytt viðhorf og kröfur um sveigjanlegri starfslok sem kallað er eftir í vaxandi mæli.

Heimild til að greiða hálfan lífeyri kallar ekki á breytingu á lögum um lífeyrissjóði en fyrir liggur að breyta þarf samþykktum til samræmis við væntanlega reglugerð um málið. Þá þarf að sjálfsögðu að breyta upplýsingakerfum og tilheyrandi verkferlum.

Lagaákvæðið tekur gildi um áramótin en ljóst er að undirbúningur lífeyrissjóðsins tekur lengri tíma. Tillögur að nauðsynlegum breytingum á samþykktum sjóðsins verða teknar til umræðu og afgreiðslu í vor, samhliða vinnu annarra lífeyrissjóða. 

Fjallað er um málið á Lífeyrismál.is.