Fara í efni

Við biðjumst velvirðingar

Úps!! Villa404

Við biðjumst velvirðingar

Umbeðin síða finnst því miður ekki, þetta getur stafað af eftirfarandi atriðum:

  • Vefsíðan hefur hugsanlega verið færð annað
  • Upplýsingarnar gætu hafa verið fjarlægðar
  • Vefslóðin sem þú fylgdir gæti hafa verið rangt skrifuð

Geymd réttindi

Sjóðfélagar sem hættu að greiða iðgjöld í A deild og fóru í annan lífeyrissjóð, eiga svokölluð geymd réttindi. Þann 1.júní 2017 var engin breyting gerð á geymdum réttindum, en þau geta eftirleiðis breyst eftir tryggingafræðilegri afkomu sjóðsins. 

Viðmiðunaraldur lífeyristöku er 65 ára, en sjóðfélagar geta valið um að fara á lífeyri frá 60 ára til 80 ára aldurs.

 

Iðgjald

Iðgjald er breytilegt, en það er nú alls 15,5%.

Vinnuveitandi greiðir 11,5% og sjóðfélagi greiðir 4%. 

 

Réttindi

Með greiðslu iðgjalda afla sjóðfélagar sér réttinda til eftirlauna, makalífeyris, barnalífeyris og örorkulífeyris.

Athugaðu að eftirlaunarétturinn er mismunandi eftir því hvort þú greiddir iðgjöld til sjóðsins fyrir 1. júní 2017 eða eftir þann tíma eins og sagt er frá hér að ofan.


Einnig hægt að skoða uppsöfnuð réttindi í Lífeyrisgátt. 

 

Eftirlaun sjóðfélaga sem greiddu iðgjöld fyrir breytingar 1. júní 2017

Sjóðfélagi hefur val um að hefja töku ellilífeyris milli 60-80 ára.

Viðmiðunaraldur lífeyristöku er 65 ár hjá þeim sjóðfélögum sem halda jafnri réttindaávinnslu.

Hefji sjóðfélagi  töku lífeyris fyrr, lækkar áætlaður lífeyrir miðað við 65 ára aldur um 0,45 - 0,65%  fyrir hvern mánuð sem taka lífeyris er flýtt.

Hefji sjóðfélagi töku lífeyris síðar, hækkar áætlaður lífeyrir miðað við 65 ára aldur, um 0,56 - 3,55% fyrir hvern mánuð sem taka lífeyris frestast. 

Í stuttu máli:

  • Hægt að hefja töku lífeyris frá 60-80 ára
  • Viðmiðunaraldur lífeyristöku er 65 ár
  • Lækkar ef lífeyristaka hefst fyrir 65 ára
  • Hækkar ef lífeyristaka hefst eftir 65 ára

Eftirlaun sjóðfélaga sem byrjuðu eftir 1. júní 2017

Sjóðfélagi hefur val um að hefja töku ellilífeyris milli 60-80 ára.

Viðmiðunaraldur lífeyristöku er 67 ár.

Hefji sjóðfélagi  töku lífeyris fyrr, lækkar áætlaður lífeyrir miðað við 67 ára aldur um 0,35 - 0,60%  fyrir hvern mánuð sem lífeyristöku er flýtt.

Hefji sjóðfélagi töku lífeyris síðar, hækkar áætlaður lífeyrir miðað við 67 ára aldur, um 0,60 - 3,10% fyrir hvern mánuð sem lífeyristöku er frestað. 

Í stuttu máli:

  • Hægt að hefja töku lífeyris frá 60-80 ára
  • Viðmiðunaraldur lífeyristöku miðast við 67 ár
  • Lækkar ef lífeyristaka hefst fyrir 67 ára
  • Hækkar ef lífeyristaka hefst eftir 67 ára

Makalífeyrir

Falli sjóðfélagi frá fær maki hans borgaðan lífeyri í fimm ár, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.

Skilyrði að sjóðfélagi sé virkur sjóðfélagi fyrir andlát eða hafi notið lífeyrisgreiðslna úr sjóðnum.

Fullur réttur maka er 50% af lífeyrisréttindum sjóðfélaga – framreiknað (miðað er við þau réttindi sem sjóðfélagi hefði átt hefði hann greitt iðgjöld á sömu forsendum til 65 ára eftirlaunaaldurs).

Maki fær þannig helming af lífeyrisréttindum sjóðfélaga fyrstu 36 mánuðina. Að þeim tíma liðnum helmingast upphæðin næstu 24 mánuði.

Hafi maki barn yngra en 22 ára á framfæri sínu, helst fullur makaréttur fram að 22 ára aldri yngsta barns. Sé maki meira en 50% öryrki og yngri en 67 ára við fráfall sjóðfélaga, helst fullu makaréttur meðan sú örorka varir.

 

 

Í stuttu máli:

  • Fullur réttur er 50% af lífeyrisréttindum sjóðfélaga – framreiknað.
  • Fullur réttur í 36 mánuði
  • Hálfur réttur í 24 mánuði
  • Fullur réttur ef barn er yngra en 22 ára
  • Fullur réttur ef maki er meira en 50% öryrki og yngri en 67 ára við fráfall sjóðfélaga

Barnalífeyrir

Börn sjóðfélaga fá greiddan barnalífeyri til 22 ára aldurs við fráfall eða örorku sjóðfélaga. Um er að ræða ákveðna krónutölu sem breytist eftir vísitölu neysluverðs til verðtryggingar. Barnalífeyrir vegna andláts sjóðfélaga er 25.746 kr. m.v. vísitölu júní 2016. Barnalífeyrir vegna örorku er 19.310 kr. m.v. vísitölu desember 2017.

  

 

Í stuttu máli:

  • Barnalífeyrir greiddur vegna andláts eða örorku
  • Greitt þar til barn verður 22ja ára
  • 25.746 kr. vegna andláts mv. VNV
  • 19.310 kr. mv. VNV vegna örorku

Örorkulífeyrir

Þeir sem hafa greitt til sjóðsins í a.m.k. tvö ár og hafa verið metnir af lækni til meira en 40% örorku og verða fyrir raunverulegri tekjuskerðingu geta átt rétt á örorkulífeyri.

Örorkulífeyrir er framreiknaður til 65 ára aldurs að uppfylltum ákveðnum skilyrðum (miðað er við þau réttindi sem sjóðfélagi hefði átt hefði hann greitt iðgjöld á sömu forsendum til ellilífeyrisaldurs).

Örorkulífeyrir fer eftir mati á örorkuprósentu (dæmi: 45% örorka veitir 45% réttindi).

Örorka miðast við vanhæfni til að gegna starfi sem sjóðfélagi vann þegar hann var metinn til örorku í 5 ár. Eftir þann tíma er örorka hans endurmetin miðað við hæfni til að gegna almennum störfum.

 

Í stuttu máli:

  • Miðað við a.m.k. 40% örorkumat
  • Raunveruleg tekjuskerðing
  • Framreiknað til 65 ára aldurs að ákveðnum skilyrðum uppfylltum
  • Vanhæfni til að gegna starfi sínu í 5 ár
  • Endurmetið eftir 5 ár og miðað við hæfni til að gegna almennum störfum