Fara í efni

Námskeið um lífeyrismál við starfslok

Boðið verður upp á námskeið um lífeyrismál við starfslok fyrir sjóðfélaga Brúar lífeyrissjóðs og Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar á vordögum. Annars vegar stendur sjóðurinn fyrir rafrænu námskeiði þriðjudaginn 9. maí nk. kl. 12:00. Hins vegar verður námskeið haldið fimmtudaginn 11. maí nk. kl. 16:30 í húsakynnum Brúar lífeyrissjóðs að Sigtúni 42.

Skráningar er óskað á námskeiðin. Þeir sem skrá sig á rafrænt námskeið fá sendan tölvupóst frá sjóðnum með viðkomandi innskráningarupplýsingum áður en námskeiðið hefst.

Á námskeiðunum verður farið almennt yfir helstu réttindi sjóðfélaga, sýnt hvar upplýsingar um lífeyrisréttindi er að finna og spurningum svarað sem brenna á sjóðfélögum um lífeyrismál.

Veldu dagsetningu

captcha