Fara í efni

Breyttar samþykktir Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar

Breyttar samþykktir Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar tóku gildi þann 1. desember 2021. Samþykktirnar voru samþykktar af stjórn sjóðsins þann 8. september 2021 og samþykktar af Sameyki og Reykjavíkurborg. Samþykktirnar voru sendar til umsagnar Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands og staðfestar af Fjármála- og efnahagsráðuneytinu þann 1. desember 2021.

Breytingarnar taka til fyrst og fremst til 4. gr. samþykktanna þar sem nánar er skerpt á umfjöllun um þær aðstæður sem leitt geta til þess að umboð stjórnarmanna geti verið afturkallað. Voru breytingar þessar gerðar að kröfu Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands.

Breyttar samþykktir sjóðsins eru aðgengilegar hér.