Fara í efni

Velkomin á nýja heimasíðu sjóðsins!

Eins og sjá má hefur ný vefsíða fyrir Lífeyrissjóð starfsmanna Reykjavíkurborgar litið dagsins ljós.

Rekstraraðili sjóðsins, heitir nú Brú lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga, en ákveðið var að skipta um heiti sjóðsins úr Lífeyrissjóði starfsmanna sveitarfélaga yfir í Brú lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga um leið og unnið var að nýju útliti og heimasíðu. Þótti kominn tími til að uppfæra einnig heimasíðu Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar og gera hana notendavænni og nútímalegri.

Það er ósk starfsfólks Brúar lífeyrissjóðs að ný heimasíða reynist upplýsandi fyrir sjóðfélaga og falli vel í kramið. Að sjálfsögðu eru sjóðfélagar ávallt velkomnir í heimsókn á skrifstofu sjóðsins eða að hafa samband við starfsfólk Brúar lífeyrissjóðs til að fá frekari upplýsingar um lífeyrisréttindi sín eða lánakjör.