Fara í efni

Breyting á vaxtakjörum sjóðfélagalána

Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að breyta vöxtum á fasteignatryggðum lánum. Breytingin tekur þegar gildi fyrir ný lán en lögum samkvæmt er tilkynnt um vaxtabreytingu útgefinna lána með 30 daga fyrirvara og taka vextirnir því gildi á næsta gjalddaga að þeim tíma liðnum.

 

Óverðtryggðir breytilegir vextir verða 8,9%, verðtryggðir breytilegir vextir verða 3,3% og vextir á óverðtryggðum viðbótarlánum 9,9%. Sjá nánar í vaxtatöflu hér.