Fara í efni

Fjárfestingarstefna

Markmið Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar, LsRb, er að ávaxta eignir sjóðsins á hagkvæman hátt með uppbyggingu eigna að leiðarljósi. Eignasamsetning sjóðsins er ákveðin samkvæmt fyrirfram mótaðri fjárfestingarstefnu og innan þeirra heimilda sem sjóðnum er gert
að starfa skv. VII. kafla laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Áhersla er lögð á að stýra eignum sjóðsins með faglegum hætti og vanda til þeirrar vinnu sem liggur að baki ákvörðunum um fjárfestingar. Fjárfestingarstefna sjóðsins er sem fyrr varkár svo ekki reyni frekar á bakábyrgð Reykjavíkurborgar

Haustið 2021 skrifaði sjóðurinn undir viljayfirlýsingu gagnvart alþjóðlegu samtökunum Climate Investment Coalition (CIC) um fjárfestingu fyrir 30,5 milljón Bandaríkjadala, eða tæplega 4 milljarða króna, í verkefnum sem tengjast hreinni orku og loftlagstengdum verkefnum fram til ársins 2030. Í eignasafni sjóðsins eru nú þegar fjárfestingar fyrir tæplega 7 milljarða króna sem flokkast undir skilgreiningu slíkra grænna fjárfestinga og áhersla á grænar fjárfestingar er í samræmi við stefnu sjóðsins um ábyrgar fjárfestingar

Fjárfestingarstefna sjóðsins fyrir árið 2024 var samþykkt 27. nóvember 2023 og er birt hér fyrir neðan:

Fjárfestingarstefna LsRb fyrir árið 2024

Fjárfestingarstefna LsRb fyrir árið 2023