Fara í efni

LsRb - Starfslok

Par situr á bekk

Hvenær sæki ég um lífeyri?

Þeir sem eru orðnir 65 ára og hafa látið af störfum hjá Reykjavíkurborg geta hafið töku lífeyris. Þeir sem hafa náð 95 ára reglunni sem er samanlagður sjóðfélagaaldur og lífaldur geta þó hafið töku lífeyris fyrr. Við mælum með að þeir sem eru að nálgast 95 ára regluna hafi samband við lífeyrisfulltrúa Brúar lífeyrissjóðs til að kynna sér réttindi sín.

Sækja um lífeyri hjá LsRb       

Umsóknarvefur (Brú og LsRb)

 

Hvar get ég séð réttindi mín?

Lífeyrisgáttin sýnir þér öll þau réttindi sem þú hefur unnið þér inn á starfsævinni. Hún sýnir réttindi í samtryggingastóði - ekki í séreignarsjóði. Athugaðu að lífeyrisréttindi eru ólík á milli sjóða og viðmiðunaraldur til lífeyristöku misjafn. Lífeyrisgáttin er góð leið til þess að finna upplýsingar og svara spurningum eins og:

  • Við hverju má ég búast við þegar ég hætti að vinna?
  • Hverjar verða tekjur mínar?
  • Hvaða réttindi á ég og hvar?
  • Er hægt að nálgast yfirlit yfir lífeyrisréttindi mín?

Hér getur þú nálgast Lífeyrisgáttina

 

Hvernig sæki ég um?

Þegar þú hefur ákveðið að hefja töku eftirlauna fyllir þú út umsókn. Þú átt kost á að óska eftir því að umsókn verði send áfram á aðra lífeyrissjóði þar sem þú átt geymd réttindi, og spara þér ómakið við að senda umsóknir líka þangað. 

> Sækja um lífeyri hjá LsRb

> Umsóknarvefur Brúar Lífeyrissjóðs

Þess ber þó að geta að efirlaunaaldur er breytilegur eftir lífeyrissjóðum þannig að samsetning lífeyris gæti verið mismunandi fyrstu árin. Hjá lífeyrissjóðum er almennt miðað við að taka ellilífeyris hefjist við 67 ára aldur. Þannig mælum við með að lífeyristaki kynni sér réttindi og reglur þeirra sjóða sem hann á réttindi í.

Meðaltalsregla eða eftirmannsregla

Viðmið lífeyris getur verið annað hvort skv. meðaltalsreglu eða eftirmannsreglu.

Meðaltalsregla

Almenna reglan er sú að lífeyrir breytist mánaðarlega skv. vísitölu launa opinberra starfsmanna.  Lífeyrir miðast við lokastarfslaun sjóðfélaga og vísitölu launa opinberra starfsmanna fylgt. Allir sem eiga geymd réttindi fara á meðaltalsreglu.

Eftirmannsregla

Þeir sem hefja töku lífeyris í beinu framhaldi af starfi geta óskað eftir að lífeyrir fylgi launum eftirmanns. Lífeyrir miðast þá við laun eftirmanns sjóðfélaga í starfi og fylgir kjarasamningum.

Hægt er að fá þriggja mánaða frest til að velja eftirmannsreglu. Meðaltalsreglan er meginregla og fara sjóðfélagar sjálfkrafa á hana, velji þeir ekki eftirmannsreglu.

Hægt er að færa sig af eftirmannsreglu yfir á meðaltalsreglu, en ekki öfugt.

 

Skattur

Sjóðfélagi þarf að merkja á umsókninni viðeigandi skattþrep og hvort nýta eigi skattkort hjá lífeyrissjóðnum. Það er á ábyrgð sjóðfélaga að láta sjóðinn vita hvort hann óski eftir því að nýta rafrænan persónuafslátt og í hvaða skattþrepi skattgreiðslur eiga að vera. Staðgreiðsla skatta 2023, samkvæmt upplýsingum frá Skatturinn.is, er reiknuð í þremur þrepum:

  • Skattþrep 1: 31,48% af tekjum 0 – 446.136 kr.
  • Skattþrep 2: 37,98% af tekjum 446.137 - 1.252.501 kr.
  • Skattþrep 3: 46,28% af tekjum yfir 1.252.501 kr.

Persónuafsláttur er 64.926 kr. á mánuði.

Umsóknartími

Til að fá útborgað 1. dag næsta mánaðar þarf sjóðurinn umsókn þína um eftirlaun fyrir 15. dag mánaðarins á undan. Það tekur sjóðinn a.m.k. fimmtán daga að vinna umsókn þína.