Fara í efni

Óverðtryggð lán - nýr valkostur

Brú lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga býður nú upp á tvo hagstæða lánakosti fyrir sjóðfélaga. Annars vegar óverðtryggt lán með breytilegum vöxtum, nú 6,44%, og hins vegar verðtryggt lán með 3,7% föstum vöxtum.

Lánin eru veitt gegn veði í íbúðarhúsnæði:

  • Hámarks lánveiting er nú allt að 50.000.000 kr
  • Hámarks veðhlutfall hækkar í allt að 75%
  • Lántökugjald lækkar úr 1% í 0,5%
  • Ekkert lántökugjald við endurfjármögnum á lánum frá sjóðnum eldri en 12 mánaða
  • Ekkert uppgreiðslugjald 

Skilyrði fyrir lánveitingu umfram 65% veðhlutfall er 1. veðréttur og takmarkast við 35 ára lánstíma

Sjá nánar um lán sjóðsins hér.