Fara í efni

Skilagreinar

Þessi síða er fyrst og fremst ætluð launagreiðendum til aðstoðar og útskýringa. Pósthólf iðgjaldadeildar er: skilagreinar@lifbru.is

 

Rafrænar skilagreinar

Skilagreinum skal skila inn rafrænt til sjóðsins. Við hjá Brú lífeyrissjóði viljum tryggja öryggi og nákvæmni í meðhöndlun launaupplýsinga. Öruggustu og hagkvæmustu leiðirnar til að senda skilagreinar til sjóðsins eru eftirfarandi:
 
  • Leið 1: Rafræn samskipti beint úr launakerfi.
    Nánast öll launakerfi bjóða upp á þann möguleika að senda rafrænar skilagreinar beint í gegnum launakerfið. Með þessu móti sparast tími og fyllsta öryggis er gætt. Þjónustuaðilar launakerfa geta veitt upplýsingar um það hvað kerfin bjóða upp á.
    Ef skilagreinum er skilað beint í gegnum launakerfi þarf að fylgja leiðbeiningum á: http://www.skilagrein.is/

  • Leið 2: Skrá lesin út úr launakerfi og send í gegnum launagreiðendavef.
    Skilagrein er lesin sem textaskrá út úr launakerfi. Hún er svo send til sjóðsins í gegnum launagreiðendavef. Þetta er örugg leið en launagreiðendavefurinn er með sama öryggi og netbankar.
  • Leið 3: Skilagrein send með "https" samskiptum.
    Ef launakerfi launagreiðanda býður ekki upp á þá möguleika sem lýst er í leið 1 og leið 2 er hægt að skrá upplýsingar um launþega og iðgjöld á launagreiðendavefnum og senda skilagreinina þannig inn með öruggum "https" samskiptum. Fyrir launagreiðendur með færri á launaskrá er einnig mögulegt að skila inn í gegnum Launagreiðendavef.PDF / Leiðbeiningar fyrir launagreiðendavef er að finna hér

 

 

Upplýsingar sem þurfa að koma fram

Áður en skilagrein er send til Brúar lífeyrissjóðs er nauðsynlegt að kynna sér í hvaða deild skal greiða og hvaða upplýsingar þurfa að koma fram. A deild er eingöngu fyrir launagreiðendur sem eru sveitarfélög, stofnanir og fyriræki sveitarfélaga. B deild er réttindasöfn sjö lokaðra lífeyrissjóða. V deild er opin öllum. 

A deild Brúar lífeyrissjóðs

A deild er eingöngu fyrir launagreiðendur sem eru sveitafélög, stofnanir, fyrirtæki og samlög sveitafélaga. Eftirfarandi upplýsingar þurfa að koma fram:

  • Upplýsingar um launagreiðanda
  • Iðgjaldatímabil
  • Nafn, kennitala og iðgjald sjóðfélaga
  • Framlag launagreiðanda og heildargreiðsla
  • Lífeyrissjóðsnúmer A deildar er 680
  • Lífeyrissjóðsnúmer endurhæfingarsjóðs A deildar er R680

V deild Brúar lífeyrissjóðs (opin öllum)

V deild er opin fyrir alla. Eftirfarandi upplýsingar þurfa að koma fram:

  • Nafn og kennitala launagreiðanda
  • Nafn og kennitala sjóðfélaga
  • Iðgjaldatímabil
  • Iðgjöld til sjóðsins:
    • Framlag sjóðfélaga er 4%
    • Framlag laungagreiðanda er 11,5%
    • Framlag í endurhæfingarsjóð er 0,1%
  • Lífeyrissjóðsnúmer V deildar er L683 (eða 1683)
  • Lífeyrissjóðsnúmer endurhæfingarsjóðs V deildar er R683 (eða 3683)

B deild Brúar lífeyrissjóðs

B deild er réttindasöfn lokaðra lífeyrissjóða sem sameinuðust í eina deild árin 2013, 2017 og 2018. Lífeyrissjóðunum var lokað fyrir nýjum sjóðsfélögum þann 1. júlí 1998 í samræmi við lög nr. 129 frá 1997.

> Nánari upplýsingar um B deild.

 

 

Iðgjöld skulu lögð inn á reikning: 

A- og V-deild:

Bankareikningur nr. 0338-26-1121

Kt. 491098-2529