Fara í efni

Fasteignalán

Hús á fjalli

 

 

Fasteignalán hjá Brú

Brú lífeyrissjóður býður sjóðfélögum sínum og sjóðfélögum Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar upp á lán til íbúðakaupa, viðhalds á húsnæði eða endurfjármögnunar.

Sækja um lán Lánareiknivél  Bráðabirgðagreiðslumat



Get ég fengið lán hjá sjóðnum?

  • Ef þú ert sjóðfélagi hjá Brú lífeyrissjóði eða Lífeyrissjóði starfsmanna Reykjavíkurborgar getur þú sótt um lán hjá sjóðnum. Nóg er að einn af umsækjendum sé sjóðfélagi.

  • Ef þú hefur einhvern tímann greitt iðgjald hjá sjóðnum átt þú rétt á að sækja um lán hjá sjóðnum. Þú getur kannað hvort þú hafir greitt iðgjald hjá sjóðnum hér.

  • Ef þú hefur áhuga á að gerast sjóðfélagi þá er V deild sjóðsins opin öllum. Til þess að gerast sjóðfélagi þarftu að tilkynna launagreiðanda að iðgjöld skulu greidd til Brúar lífeyrissjóðs, V deild. Frekari upplýsingar fyrir einyrkja eða launagreiðendur má finna undir skilagreinar.

Afgreiðslutími umsókna

Sjóðurinn leggur sig fram að vinna lánsumsóknir eins fljótt og kostur er. Vinnsla lánsumsókna getur ekki hafist fyrr en umbeðin gögn hafa skilað sér til sjóðsins. Ef lántakendur eru fleiri en einn þurfa aðrir lántakendur að skila inn samþykki fyrir gagnaöflun.

  • Afgreiðsla lánsumsóknar getur tekið 2-3 vikur.
  • Umsóknir vegna fasteignakaupa eru afgreiddar í forgangi.

Lánamöguleikar

Hér getur þú kynnt þér lánakosti sjóðsins. Á vefsíðunni má einnig nálgast lánareiknivél. Lánareiknivélin gerir sjóðfélögum kleift að bera saman lánamöguleika sem í boði eru hjá lífeyrissjóðnum. Gagnlegt er að sjá áætlaða greiðslubyrði, afborganir og kostnað ólíkra lánamöguleika í reiknivélinni.

Lánareiknivél

Verðtryggt lán og óverðtryggt viðbótarlán

Lán eru með verðtryggðum vöxtum. Þegar um fasteignakaup er að ræða býður sjóðurinn viðbótarlán með óverðtryggðum vöxtum sem nemur veðsetningu frá 65% upp að 75% af kaupverði (85% við fyrstu kaup).

Verðtryggð lán eru tengd verðbólgu sem þýðir að höfuðstóll láns getur hækkað. Ef verðbólga er að aukast þá hækkar höfuðstóll láns í samræmi við það sem hefur í för með sér hægari eignamyndun. Verðtryggðir vextir eru almennt lægri en óverðtryggðir sem þýðir lægri greiðslubyrði til að byrja með.

Óverðtryggð lán eru ekki tengd verðbólgu sem þýðir að verðbólga hækkar ekki höfuðstól lánsins. Höfuðstóll láns lækkar smám saman með hverri afborgun og er því um hraðari eignamyndun að ræða. Óverðtryggðir vextir eru almennt hærri en verðtryggðir sem þýðir að afborgun í hverjum mánuði er hærri.

Aðeins viðbótarlán eru með óverðtryggðum vöxtum.

Samkvæmt lögum verða verðtryggð lán að vera til að minnsta kosti fimm ára. Lánstími getur verið frá 5-40 ár ef heildarveðsetning eignar er undir 65% af fasteignamati. Ef veðsetning er hærri er hámarkslánstími 35 ár.

Fastir vextir eða breytilegir vextir?

Fastir vextir eru alltaf þeir sömu út líftíma lánsins. Með því að festa vexti lánsins hafa breytingar á vaxtakjörum ekki áhrif á vaxtakjör sjóðfélaga.

Breytilegir vextir verðtryggðra lána taka breytingum samkvæmt ákvörðun sjóðsins. Við ákvörðun vaxta og vaxtabreytinga er einkum horft til ávöxtunarkröfu á verðtryggðum ríkisskuldabréfum á markaði og/eða almennra vaxtakjara á markaði á sambærilegum lánum.

Vaxtatafla Brúar lífeyrissjóðs

Jafnar greiðslur eða jafnar afborganir?

Jafnar greiðslur (annuitet) -  Hver afborgun er lægri og alltaf sama fjárhæð. Þetta veldur því að í upphafi er greitt minna inn á höfuðstól lánsins í hverri greiðslu og meira í vexti. Eftir því sem líður á lánstímann fer hærra hlutfall hverrar afborgunar inn á höfuðstól lánsins. Gott er að skoða þetta nánar í greiðsluflæði lána í reiknivél sjóðsins 

Jafnar afborganir - Hver afborgun fer að stærri hluta inn á höfuðstól og minna í vexti sem þýðir að greiðslur eru hærri til að byrja með og fara svo lækkandi smám saman á lánstímanum. Gott er að skoða þetta nánar í greiðsluflæði lána í reiknivél sjóðsins.

Greiðslumat

Brú Lífeyrissjóður framkvæmir greiðslumat eftir að umsækjandi hefur sótt um lán og þegar öll gögn hafa skilað sér til sjóðsins. Á heimasíðu sjóðsins má finna bráðabirgðagreiðslumat. Tilgangur bráðabirgðagreiðslumats Brúar er að gefa áætlaða greiðslugetu á mánuði. Gagnlegt er að nota niðurstöðu greiðslumatsins við notkun á lánareiknivélinni til að bera saman lán og lánakosti sem bjóðast. 

Bráðabirgðargreiðslumat

Lánareiknivél

Reglur um veð

  • Aðeins er lánað gegn veði í íbúðarhúsnæði sem er í eigu umsækjanda.
  • A.m.k. einn umsækjandi þarf að búa í eigninni sem sett er að veði.
  • Við fasteignakaup er möguleiki að sækja um viðbótarlán frá 65% upp í 75% (eða upp í 85% ef um fyrstu kaup er að ræða) af kaupverði samkvæmt kaupsamningi eða samþykktu kauptilboði.
  • Hámarksveðsetning er 65% fyrir endurfjármögnun.
  • Hámarksveðsetning er 75% fyrir fasteignakaup.
  • Hámarksveðsetning er 85% fyrir fyrstu kaup.
  • Veðsetning fer þó aldrei yfir 100% af samanlögðu brunabóta- og lóðarmati viðkomandi eignar.

Lánshæfismat

Við afgreiðslu lánsumsókna hjá sjóðnum eru upplýsingar um lánshæfismat lántakenda sóttar í gagnagrunn um lánshæfi í samræmi við samþykki þeirra um gagnaöflun.

Lánaráðgjöf

Sjóðurinn veitir ekki lánaráðgjöf og er sjóðfélögum bent á að leita til fjármálaráðgjafa hvað slíka ráðgjöf varðar.

 

 

Fleiri algengar spurningar um lánamál

Hafðu samband eða bókaðu tíma