Fara í efni

Um Brú lífeyrissjóð

Brú - Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga

Brú lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga er lífeyrissjóður fyrir fólk sem starfar hjá sveitarfélögunum. Hann hét áður Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga en skipt var um heiti sjóðsins í júní 2016.

Sjóðurinn var stofnaður 28. júlí 1998 með samningi á milli BHM, BSRB og Kennarasambands Íslands (KÍ) fyrir hönd hlutaðeigandi stéttarfélaga annars vegar og hins vegar Sambands íslenskra sveitarfélaga. Eldri lífeyrissjóðum sveitarfélaga var lokað á sama tíma fyrir nýja sjóðfélaga.


Skylduaðild

Starfsmenn sveitarfélaga sem eru í BSRB, BHM og KÍ eiga kjarasamningsbundna aðild að sjóðnum. Þeir geta valið um að vera í annað hvort A deild eða V deild.

Fulltrúar stofnaðila eiga sæti í stjórn sjóðsins og allir sjóðfélagar eiga rétt á setu á aðalfundum lífeyrissjóðsins með málfrelsi og tillögurétt um hvaðeina er varðar starfsemi sjóðsins.

Á milli eftirtalinna aðila er í gildi kjarasamningur um skylduaðild hlutaðeigandi starfsmanna að Brú lífeyrissjóði.

  • Samband íslenskra sveitarfélaga
  • Aðildarfélög BHM
  • Aðildarfélög BSRB
  • KÍ (Kennarasamband Íslands)

> Sjá yfirlit yfir aðildarfélög sem eiga samning við Brú lífeyrissjóð


Deildir Brúar lífeyrissjóðs:

A deild

Starfsmenn sveitarfélaga sem eru í BSRB, BHM eða KÍ eiga kjarasamningsbundna aðild að A deild.

  • Starfsmenn frá 1. júlí 1998 eru í A-deild.
  • Eldri starfsmenn eiga rétt á að fara í A-deild.
  • Nánar um A deild.

V deild

V deild er öllum opin.

B deild

B deild: Réttindasöfn lokaðra lífeyrissjóða sem sameinuðust í eina deild árin 2013, 2017 og 2018:

  • Eftirlaunasjóður starfsmanna Hafnarfjarðarkaupstaðar
  • Eftirlaunasjóður Reykjanesbæjar
  • Lífeyrissjóður Akraneskaupstaðar
  • Lífeyrissjóður Neskaupstaðar
  • Lífeyrissjóður starfsmanna Húsavíkurkaupstaðar
  • Lífeyrissjóður starfsmanna Kópavogskaupstaðar
  • Lífeyrissjóður starfsmanna Vestmannaeyjakaupstaðar
  • Nánar um B deild.

LsRb (Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar)

Brú lífeyrissjóður rekur einnig Lífeyrissjóð starfsmanna Reykjavíkurborgar (frá 1999) sem er með sambærileg réttindi og réttindasöfn í B-deildinni.