Fara í efni

Um Brú lífeyrissjóð

Brú lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga er lífeyrissjóður fyrir fólk sem starfar hjá sveitarfélögunum. Hann hét áður Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga en skipt var um heiti sjóðsins í júní 2016.

Sjóðurinn var stofnaður 28. júlí 1998 með samningi á milli BHM, BSRB og Kennarasambands Íslands (KÍ) fyrir hönd hlutaðeigandi stéttarfélaga annars vegar og hins vegar Sambands íslenskra sveitarfélaga. Eldri lífeyrissjóðum sveitarfélaga var lokað á sama tíma fyrir nýja sjóðfélaga.

Skylduaðild

Starfsmenn sveitarfélaga sem eru í BSRB, BHM og KÍ eiga kjarasamningsbundna aðild að sjóðnum. Þeir geta valið um að vera í annað hvort A deild eða V deild.

Fulltrúar stofnaðila eiga sæti í stjórn sjóðsins og allir sjóðfélagar eiga rétt á setu á aðalfundum lífeyrissjóðsins með málfrelsi og tillögurétt um hvaðeina er varðar starfsemi sjóðsins.

Aðild að Brú lífeyrissjóði

Á milli eftirtalinna aðila er í gildi kjarasamningur um skylduaðild hlutaðeigandi starfsmanna að Brú lífeyrissjóði.

  • Samband íslenskra sveitarfélaga
  • Aðildarfélög BHM
  • Aðildarfélög BSRB

 Deildir Brúar lífeyrissjóðs:

A deild

  • A deild: kjarasamningsbundin aðild starfsmanna sveitarfélaga sem eru í BSRB og BHM, ásamt KÍ.
    • Starfsmenn frá 1. júlí 1998 eru í A-deild.
    • Eldri starfsmenn eiga rétt á að fara í A-deild.
    • Nánar um A deild.

V deild

  • V deild: Er öllum opin.

B deild

  • B deild: Réttindasöfn lokaðra lífeyrissjóða sem sameinuðust í eina deild árin 2013, 2017 og 2018:
    • Eftirlaunasjóður starfsmanna Hafnarfjarðarkaupstaðar
    • Eftirlaunasjóður Reykjanesbæjar
    • Lífeyrissjóður Akraneskaupstaðar
    • Lífeyrissjóður Neskaupstaðar
    • Lífeyrissjóður starfsmanna Húsavíkurkaupstaðar
    • Lífeyrissjóður starfsmanna Kópavogskaupstaðar
    • Lífeyrissjóður starfsmanna Vestmannaeyjakaupstaðar
    • Nánar um B deild.

Brú lífeyrissjóður rekur einnig Lífeyrissjóð starfsmanna Reykjavíkurborgar (frá 1999) sem er með sambærileg réttindi og réttindasöfn í B-deildinni.