Fara í efni

Áramótayfirlit fyrir árið 2023

Áramótayfirlit fyrir árið 2023 hafa verið send á Mínar síður allra lántaka og ábyrgðarmanna fyrir lán sem voru virk á árinu 2023. Tilkynning hefur verið send í tölvupósti til þeirra sem eru með skráð netfang og bréfpóstur sendur á þau sem eftir standa.

Á Mínum síðum undir flipanum Lánaskjöl er að finna skjalið Lánayfirlit 31.12.2023

Athugið að öll skjöl frá Brú lífeyrissjóði eru nú einungis birt á Mínum síðum á vef sjóðsins, en sjóðurinn sendir orðsendingar um mikilvæg skjöl á tölvupósti. Mikilvægt er því að skrá netfang á mínum síðum á lifbru.is, undir Notendaupplýsingar.

Hvað er áramótayfirlit?

Útskýringar á skattskilahluta áramótayfirlita

Ef einhverjar spurningar vakna er velkomið að hafa samband við okkur í síma eða með því að senda okkur tölvupóst á netfangið lanamal@lifbru.is.