04.05.2020			
			
			
		
							Almennt
					
	Ársfundur verður haldinn mánudaginn 25. maí kl. 16.30 á Grand Hótel Reykjavík í fundarsalnum Gallerí, Sigtúni 38, 105 Reykjavík.
Dagskrá
- Skýrsla stjórnar
 - Ársreikningur 2019
 - Tryggingafræðileg athugun
 - Fjárfestingastefna sjóðsins kynnt
 - Tilnefning stjórnarmanna og varamanna
 - Kynninga á breytingum samþykkta sjóðsins
 - Önnur mál
 
Allir sjóðfélagar, fulltrúar launagreiðenda og viðkomandi stéttarfélaga eiga rétt til fundarsetu á ársfundinum. Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta á fundinn en vegna Covid-19 er óskað eftir að fundarmenn tilkynni mætingu til sjóðsins á netfangið lifbru@lifbru.is eða í síma 5400700.
Reykjavík 30. apríl 2020
Stjórn Brúar lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga