29.04.2020			
			
			
		
							Almennt
					
	Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar verður haldinn miðvikudaginn 13. maí kl. 12:30 í húsakynnum Brúar lífeyrissjóðs, Sigtúni 42, Reykjavík.
Dagskrá:
- Skýrsla stjórnar
 - Ársreikningur 2019
 - Tryggingafræðileg athugun
 - Fjárfestingatefna sjóðsins kynnt
 - Tilnefning stjórnarmanna og varamanna
 - Kynning á breytingum á samþykktum sjóðsins
 - Önnur mál
 
Allir sjóðfélagar sem og fulltrúar launagreiðenda og viðkomandi stéttarfélaga eiga rétt til fundarsetu á ársfundinum.
Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta á fundinn en óskað er eftir að þeir tilkynni mætingu til sjóðsins á netfangið lifbru@lifbru.is eða í síma 5400700.
Reykjavík, 28. apríl 2020
Stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar