Fara í efni

Ársfundur LsRb verður haldinn 8. maí

Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar verður haldinn miðvikudaginn 8. maí kl. 16:00 í húsakynnum Brúar lífeyrissjóðs, Sigtúni 42, Reykjavík

Dagskrá:

  1. Skýrsla stjórnar
  2. Ársreikningur 2023
  3. Tryggingafræðileg athugun
  4. Fjárfestingastefna sjóðsins kynnt
  5. Tilnefning stjórnarmanna og varamanna
  6. Kynning á breytingum samþykktum sjóðsins
  7. Önnur mál

Allir sjóðfélagar sem og fulltrúar launagreiðenda og viðkomandi stéttarfélaga eiga rétt til fundarsetu á ársfundinum og eru hvattir til að mæta á fundinn.