Stjórn sjóðsins hefur samþykkt ársreikning sjóðsins fyrir árið 2024.
Hrein eign sjóðsins til greiðslu lífeyris í árslok nam 557,2 ma.kr. en var 393,2 ma.kr. í lok árs 2023 og hækkaði um 164,0 ma.kr. milli ára. Þar af var hrein eign Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar (LsRb) í upphafi árs 91,6 ma.kr. en LsRb var sameinaður Brú lífeyrissjóði í upphafi árs 2024. Stofnuð var ný deild hjá Brú, R deild þar sem haldið er utan um rekstur, eignir, skuldir og skuldbindingar LsRb. Hrein nafnávöxtun Brúar var 13,1% og hrein raunávöxtun 7,9%.
Sjóðfélagar og iðgjöld
Iðgjöld námu 30,7 ma.kr. á árinu 2024 (2023: 30,0 ma.kr.), þar af voru 6,3 ma.kr. vegna aukaframlaga. Alls greiddu að meðaltali 22.646 einstaklingar iðgjöld til sjóðsins (2023: 21.760) og skiptust þeir milli sjóðsdeilda sem hér segir:
Lífeyrisþegar og lífeyrisgreiðslur
Sjóðurinn greiddi 21,4 ma.kr. í lífeyri á árinu 2024 (2023: 12,1 ma.kr.), þar af 16,7 ma.kr. í eftirlaun og 2,8 ma.kr. í örorkulífeyri. Að meðaltali fengu 16.315 einstaklingar greiddan lífeyri frá Brú á árinu 2024 (2023: 11.420) og skiptust þeir milli sjóðsdeilda sem hér segir:
Tryggingafræðileg staða
Tryggingafræðileg úttekt er gerð sérstaklega fyrir hverja deild sjóðsins og undirliggjandi réttindasöfn. Við úttektina er miðað við að raunávöxtun eigna verði 3,5% á komandi árum.
Heildarskuldbinding og hlutfall heildareigna umfram heildarskuldbindingu skiptist á milli sjóðsdeilda sem hér segir:
Niðurstaða tryggingafræðilegrar athugunar fyrir A deild og V deild eru innan þeirra marka sem áskilin eru í 39. gr. laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.
Reikniforsendur um örorku-, giftingar- og barnalíkur eru breyttar frá síðustu tryggingafræðilegri athugun sjóðsins. Hvað varðar örorkulíkur er nú miðað við reynslu áranna 2018-2023 en þegar litið er til meðaltals allra lífeyrissjóða reyndust örorkulíkur hafa lækkað frá tímabilinu 2011-2016, einkum hjá körlum. Giftingarlíkur og meðalaldur maka og barneignalíkur hafa einnig verið uppfærðar og er nú byggt á reynslu áranna 2019-2023. Örorkulíkur eru aðlagaðar að reynslu hverrar deildar hjá Brú.
Ávöxtun ársins
Raunávöxtun sjóðsins var 7,8% á árinu 2024 (2023: +2,4%) og nafnávöxtun 12,9% (2023: +10,6%). Lífeyrissjóðurinn er langtímafjárfestir og hefur skilað góðri ávöxtun síðustu ár að undanskildu árinu 2022. Meðalávöxtun síðustu 5 ára er 2,3% og síðustu 10 ára 3,7%, sem er rétt yfir því viðmiði sem lífeyrissjóðir setja sér, en gert er ráð fyrir að lífeyrissjóðir nái 3,5% raunávöxtun á ári að meðaltali.
Talsverðar markaðssveiflur voru á árinu 2024 bæði á innlendum og erlendum fjármálamörkuðum ásamt hárri innlendri verðbólgu. Ávöxtun á erlendum hlutabréfamörkuðum hélt áfram að vera góð frá árinu 2023. Innlend hlutabréf lækkuðu fyrri helming ársins en hækkuðu vel seinni helming ársins. Lækkun stýrivaxta hófst í lok október. Efnahagshorfur hafa farið batnandi en nú ríkir óvissuástand. Vísitala innlendra hlutabréfa hækkaði um 12,62% á árinu samanborið við lækkun um 0,52% á árinu 2023, en hækkun varð á innlendum skuldabréfamarkaði.
Grænar eignir
Sjóðurinn veitir upplýsingar um hversu stórt hlutfall af eignum sjóðsins teljast vera grænar eignir í samræmi við flokkunarreglugerð ESB (2020/852). Sú reglugerð skilgreinir hversu sjálfbær eða græn atvinnustarfsemi fyrirtækja telst en fyrirtækjum á fjármálamarkaði ber að nota upplýsingarnar til að upplýsa hvernig þær endurspeglast í starfsemi þeirra.
Grænt eignarhlutfall sjóðsins var á bilinu 1,0% til 3,1% í lok árs í deildum sjóðsins. Það er reiknað út frá veltu eða fjárfestingargjöldum undirliggjandi fyrirtækja og tekur til allra fjárfestingaeigna sjóðsins að frátöldum eignum með ríkisábyrgð.
Eitt af markmiðum flokkunarreglugerðar ESB er að stuðla að fjárfestingu í sjálfbærum rekstri og sporna við grænþvotti. Reglugerðin tók gildi 1. júní 2023 og er innleiðing skammt á veg komin og upplýsingar fyrirtækja því af skornum skammti. Sjóðurinn vinnur að því að auka gagnsæi í sjálfbærum fjárfestingum og styður markmið um sjálfbær fjármál. Aukin gagnaöflun og þróun á upplýsingagjöf mun auka nákvæmni í mati á sjálfbærni.
Helstu stærðir
Helstu stærðir ársins koma fram í töflunni hér fyrir neðan: