Fara í efni

Breyting á reglum um hámark veðsetningarhlutfalls fasteignalána til neytenda

Frá og með í dag 1. júlí taka gildi reglur Seðlabanka Íslands nr. 778/2021 um hámark veðsetningarhlutfalls fasteignalána til neytenda sem samþykktar voru á fundi fjármálastöðugleikanefndar 29. júní sl. Með reglunum er hámark veðsetningarhlutfalls lækkað úr 85% í 80%. Hámarkshlutfall fyrir fyrstu kaupendur er hins vegar óbreytt, eða 90%. Samhliða eru reglur nr. 666/2017, um hámark veðsetningarhlutfalls fasteignalána til neytenda felldar úr gildi.

Í ljósi þessa þarf sjóðurinn að breyta sínum lánareglum, heimasíðu, lánareikni og lánaumsóknum en unnið er að þeim breytingum.