Fara í efni

Breyting á vaxtakjörum sjóðfélagalána

Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að breyta vöxtum frá og með 1. mars 2022. Breytingin á vöxtunum nær einnig til útgefinna lána en samkvæmt lögum þarf að tilkynna vaxtabreytingu með 30 daga fyrirvara og taka vextirnir því gildi á næsta gjalddaga að þeim tíma liðnum.

Verðtryggðir breytilegir vextir verða 1,4%, óverðtryggðir breytilegir vextir 4,5%, vextir á óverðtryggðum viðbótarlánum 5,5% og óverðtryggðir fastir vextir 5,4%. Sjá nánar í vaxtatöflu hér.

Vaxtakjör nýrra lána sem eru í vinnslu hjá sjóðnum taka mið af lægri vöxtunum fram til 1. mars 2022.