Fara í efni

Breyting á vaxtakjörum sjóðfélagalána

Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að breyta vöxtum á fasteignatryggðum lánum. Breytingin tekur þegar gildi fyrir ný lán en lögum samkvæmt er tilkynnt um vaxtabreytingu útgefinna lána með 30 daga fyrirvara og taka vextirnir því gildi á næsta gjalddaga að þeim tíma liðnum.

Óverðtryggðir breytilegir vextir verða 8,5% og vextir á óverðtryggðum viðbótarlánum 9,5%. Verðtryggðir vextir eru óbreyttir. Sjá nánar í vaxtatöflu hér.