Fara í efni

Breyting á vaxtakjörum sjóðfélagalána

Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að breyta vöxtum á fasteignatryggðum lánum. Breytingin tekur þegar gildi fyrir ný lán en lögum samkvæmt þarf að tilkynna vaxtabreytingu útgefinna lána með 30 daga fyrirvara og taka vextirnir því gildi á næsta gjalddaga að þeim tíma liðnum.

Verðtryggðir breytilegir vextir verða 1,5%, óverðtryggðir breytilegir vextir 6,3% og vextir á óverðtryggðum viðbótarlánum 7,3%. Sjá nánar í vaxtatöflu hér.