19.05.2025
Almennt
Hægt er að fresta töku lífeyris hjá Tryggingastofnun en heimild frestunar hjá Tryggingastofnun er bundin því skilyrði að hafa ekki fengið greiddan mánaðarlegan lífeyri frá Lífeyrissjóðum.
Samkvæmt upplýsingum sem fengist hafa frá TR þá munu eingreiðslur sem eru greiddar út í einu lagi og greiðslur tilgreindrar og frjálsrar séreignar og 3,5% séreign af lágmarksiðgjaldi ekki hafa áhrif á frestunarhækkanir hjá TR.
TR metur sem svo að umræddar greiðslur séu ekki hluti af ævilöngum mánaðarlegum ellilífeyri og hafa því ekki áhrif á frestunarhækkanir.
Sjá fyrri umfjöllun:
Frestun hjá Tryggingastofnun tekur mið af lífeyrissjóðum