Fara í efni

Greiðsluseðlar lána ekki lengur birtir í rafrænum skjölum í netbanka

Frá og með 20. desember 2022 munum við ekki lengur birta greiðsluseðla lána í rafrænum skjölum í netbanka en greiðsluseðlana getur þú nálgast á mínum síðum á heimasíðu okkar lifbru.is.

Með því að skrá þig með rafrænum skilríkjum inn á mínar síður getur þú nálgast ýmis skjöl og upplýsingar varðandi lánin þín hjá okkur.

Undir flipanum Lán – Lánin mín má nálgast allar upplýsingar um lán. Ýtt er á línu viðkomandi láns og þá birtast nokkrir flipar:

Samantekt sýnir yfirlit yfir lánið, forsendur láns og núverandi stöðu.

Greiðslusaga sýnir allar afborganir sem greiddar hafa verið af láninu. Til að sjá greiðsluseðil fyrir afborgun er smellt á hnapp hægra megin við viðkomandi afborgun.

Gjalddagar sýnir áætlun fyrir ógjaldfallnar afborganir. Þegar gjalddagi nálgast og krafa hefur stofnast í netbanka er hægt að sjá ógreiddan greiðsluseðil með því að smella á hnapp hægra megin við viðkomandi gjalddaga.

Lánareiknir gefur kost á að reikna út áhrif þess að greiða t.d. aukalega inn á lánið. Lánareiknirinn sýnir hvernig innborgunin muni bókast og hvernig áætlaðar framtíðarafborganir munu þróast. Einnig er hægt að reikna út hvernig stytting lánstíma breytir framtíðarafborgunum.

Greiða inn á lán gefur kost á að greiða aukalega inn á lánið. Þú skráir greiðslufjárhæð og staðfestir og stofnar þannig reikning í netbanka fyrir greiðslunni.

Greiða upp lán sækir uppgreiðslustöðu lánsins og með því að staðfesta stofnar þú reikning í netbanka fyrir uppgreiðslunni.

Umframgreiðslusamningur gefur kost á að greiða aukalega inn á lánið með reglulegum greiðslum. Þú velur fjárhæð innborgana, hversu reglulega þú vilt greiða, hversu oft og hvaða dag mánaðar. Í framhaldinu mun reikningur birtast í netbanka þegar gjalddagi samnings nálgast.

Ef einhverjar spurningar vakna er þér velkomið að hafa samband við okkur í síma eða með því að senda okkur tölvupóst á netfangið lanamal@lifbru.is.