Fara í efni

Móttaka sjóðanna lokar frá og með 25. mars

Móttaka Brúar lífeyrissjóðs og Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar verður lokuð frá og með fimmtudeginum 25. mars vegna COVID-19. Starfsfólk sjóðsins mun áfram sinna sínum verkefnum en gera má ráð fyrir skerðingu á þjónustu þannig að afgreiðsla mála geta tekið lengri tíma. Á heimasíðu sjóðsins má nálgast flestar upplýsingar um lífeyrisréttindi og lán og á Mínum síðum er hægt að sækja um lífeyri og lán. Einnig er hægt ð bóka samtal hjá lífeyris og lánafulltrúm á heimasíðu sjóðsins.

Hægt er að skila gögnum til sjóðsins í póstkassa sem staðsettur er í anddyrinu á 1. hæð.

Gögn sem þurfa að berast viðskiptamönnum verða send í pósti.

Hægt er að senda fyrirspurnir í tölvupósti á lifeyri@lifbru.is og lanamal@lifbru.is

Símaþjónusta er alla virka daga frá kl. 9:00 til 16:00 í síma 540-0700