Fara í efni

Ráðstefna um fjármálavit ungs fólks

Við vekjum athygli á ráðstefnunni Fjármálavit ungs fólks. Samtök fjármálafyrirtækja standa að ráðstefnunni og verður hún haldin í Veröld, húsi Vigdísar, fimmtudaginn 18. janúar kl. 15.00 - 16.30.

Flutt verða erindi um fjármálalæsi frá ýmsum sjónarhornum, kynntar niðurstöður könnunar Gallup á fjármálaviti Íslendinga samanborið við önnur lönd og farið yfir stöðu fjármálalæsiskennslu ungmenna hér á landi. Að framsöguerindum loknum verða pallborðsumræður.

  • Fimmtudaginn 18. janúar kl. 15.00 - 16.30
  • Hús Vigdísar, Veröld við Brynjólfsgötu.

 

Hægt er að skrá sig á ráðstefnuna hér

Nánari upplýsingar | Samtök fjármálafyrirtækja

 

 

Dagskrá:


Fundarstjóri: Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja.

Ávarp: Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar-, og nýsköpunarráðherra.

 

Erindi:

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.

Friðrik Björnsson, markaðsstjóri Gallup, segir frá fjármálalæsi á Íslandi í evrópskum samanburði.

Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðstjóri Lýðheilsusviðs hjá embætti landlæknis, fjallar um tengsl fjármála og hamingju.

Auður Bára Ólafsdóttir, verkefnastjóri hjá Menntamálastofnun, heldur erindi undir yfirskriftinni: Aðalnámskrá grunnskóla, rammi náms og kennslu. Hvar rúmast fjármálafræðslan?

 

Pallborðsumræður:

Ásta S. Helgadóttir, umboðsmaður skuldara.

Ómar Örn Magnússon, skólastjóri Hagaskóla.

Tinna Ösp Arnardóttir, viðskipta- og hagfræðigreinakennari við Fjölbrautaskólann í Garðabæ.

Jón Jósep Snæbjörnsson, viðskiptatengslastjóri Aurbjargar.

Alma Björk Ástþórsdóttir, sérfræðingur í fjármálalæsi og varaformaður Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra.

Þórey Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða, stýrir umræðum.