Fara í efni

Reglur um hámark greiðslubyrðar fasteignalána

Í dag þann 29. september hefur Seðlabanki Íslands birt reglur nr. 1077/2021 um hámark greiðslubyrðar fasteignalána í hlutfalli við tekjur neytenda sem samþykktar voru á fundi fjármálastöðugleikanefndar 28. september sl. Reglurnar taka gildi þann 1. desember nk.

Samkvæmt reglunum skal hámark greiðslubyrðar nýrra fasteignalána vera 35% af mánaðarlegum ráðstöfunartekjum neytenda en hámarkshlutfall fyrir þá sem eru að kaupa fasteign í fyrsta sinn er 40%. Við útreikninginn er lánveitendum heimilt að miða lánstíma að hámarki við 40 ár fyrir óverðtryggð fasteignalán og við 30 ár fyrir verðtryggð fasteignalán.