Fara í efni

Vextir sjóðfélagalána lækka

Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að lækka vexti frá og með 26. maí 2020.  Breytingin á vöxtunum nær einnig til útgefinna lána en samkvæmt lögum þarf að tilkynna vaxtabreytingu með 30 daga fyrirvara og taka vextirnir því gildi á næsta gjalddaga að þeim tíma liðnum.

Verðtryggðir breytilegir vextir eru nú 2,0%, óverðtryggðir breytilegir vextir 4,2% vextir á óverðtryggðum viðbótarlánum verða 5,2% og óverðtryggðir fastir vextir 5,2%. Sjá nánar í vaxtatöflu hér.

Vaxtakjör þeirra lána sem eru í vinnslu hjá sjóðnum taka mið af lægri vöxtunum.