Þann 15. júní sl. samþykkti Alþingi breytingar á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða nr. 129/1997 sem taka gildi 1. janúar 2023.
Frá þeim tíma verður lágmarksiðgjald í V deild 15,5% í stað 12% þannig að launagreiðendur þurfa að greiða 11,5% mótframlag til sjóðsins. Samhliða þessari breytingu á lágmarksiðgjaldi hækkar lágmarkstryggingavernd samkvæmt lögum úr 1,4% í 1,8%.
Í júní voru samþykkt lög nr. 55/2022 um breytingu á ýmsum lögum vegna hækkunar lágmarksiðgjalds til lífeyrissjóðs en jafnframt var gerð m.a. breyting á lögum um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð nr. 111/2016. Breytingin felur í sér að einstkaklingur sem hefur ekki átt íbúðarhúsnæði síðastliðin fimm ár er heimilt að nýta úrræði laga um skattfrjálsa úttekt á séreignarsparnaði að uppfylltum öðrum skilyrðum laga um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð.