Fara í efni

Ertu að undirbúa þig fyrir fasteignakaup?

Vilt þú átta þig á hversu dýra fasteign þú getur keypt? Ef þú ert í fasteignaleit og vilt fá betri yfirsýn yfir möguleikana, þá er gott að byrja hér.

1. Bráðabirgðargreiðslumat - hugmynd um greiðslugetu

Með bráðabirgðagreiðslumati færð þú góða hugmynd um greiðslugetu þína. Athugaðu að þetta er hvorki formlegt né bindandi mat – niðurstaðan byggist eingöngu á þeim forsendum sem þú setur sjálf/ur inn.

Reiknaðu áætlaða greiðslugetu

2. Prófaðu mismunandi forsendur í lánareiknivélinni

Þegar þú hefur fengið grófa mynd af greiðslugetu og eigin fé getur þú farið í lánareiknivélina. Þar getur þú áætlað hversu háu fasteignaverði fjárhagsstaða þín stendur undir.

Í reiknivélinni getur þú prófað ólíkar forsendur og séð hvernig lánstími, greiðslutegund og vextir hafa áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði. Gott er einnig að hafa í huga þætti eins og fasteignamat, brunabótamat, lóðamat og kaupverð þar sem þeir geta haft áhrif á mögulega fjárhæð láns sem þú sækir um.

Skoðaðu lánareiknivélina

3. Reiknaðu viðmið Seðalbanka Íslands (SÍ)

Við lánveitingu þarf ekki aðeins að standast greiðslumat heldur þarf einnig að uppfylla viðmið samkvæmt reglum Seðlabanka Íslands um hámarks greiðslubyrði. Við mælum með að þú kynnir þér þessi viðmið fyrir það lán sem þú hyggst sækja um til þess að sjá hvernig staðan þín fellur að þeim.

Hvernig reikna ég SÍ viðmið?

4. Gott ráð

Það getur verið gagnlegt að hafa niðurstöður bráðabirgðagreiðslumatsins opnar í einum glugga og lánareiknivélina í öðrum. Þannig getur þú auðveldlega breytt forsendum, borið saman útreikninga og myndað þér skýra sýn áður en þú sækir formlega um lán.

 

 

 

Hversu hátt lán get ég sótt um hjá Brú?

Til að fá nákvæma niðurstöðu um hversu háa lánsfjárhæð þú getur sótt um þarf að fara í gegnum greiðslumat hjá sjóðnum. Kostnaður er samkvæmt verðskrá sjóðsins hverju sinni.

Smelltu hér til að fara í gegnum greiðslumat

Umsóknarferlið hefst á greiðslumati í gegnum Creditinfo sem dregur fram raunverulega greiðslugetu þína.

Mikilvægt er að gæta þess að velja alla lántaka áður en greiðslumatið er hafið og greitt er fyrir gagnaöflun til þess að koma í veg fyrir mögulegan viðbótarkostnað sem fellur til ef fara þarf aftur í gegnum greiðslumatið með fleiri lántökum.

Get ég farið í gegnum greiðslumat án þess að sækja um lán lán?

Já, þú getur farið í gegnum upphafsskref Umsóknar um fasteignalán á mínum síðum hjá sjóðnum sem er greiðslumatsferlið. Þannig færðu greiðslumat sem sýnir raunverulega greiðslugetu þína. Þitt er síðan valið hvort þú lýkur ferlinu með því að senda inn lánsumsókn til sjóðsins. Kostnaður er samkvæmt verðskrá sjóðsins hverju sinni.

Smelltu hér til að fara í gegnum greiðslumat

Ef þú vilt hins vegar byrja á því að fá hugmynd um greiðslugetu án þess að fara í raunverulegt greiðslumat getur þú notast við  bráðabirgðagreiðslumat  sem er í boði á heimasíðu sjóðsins.

Hvernig reikna ég SÍ viðmið?

Þegar þú hefur hugmynd um greiðslugetu þína og þá lánsfjárhæð sem þú hyggst óska eftir er mikilvægt að kanna hvort þú standist viðmið Seðlabanka Íslands (SÍ) um hámarks greiðslubyrði fasteignalána.

Brú veitir eingöngu verðtryggð fasteignalán og útreikningur á hámarks greiðslubyrði samkvæmt reglum SÍ er eftirfarandi.

  1. Stilltu lánareiknivél fyrir viðmið svona: fjárhæð láns, 25 ár og jafnar greiðslur
  2. Reiknaðu greiðslubyrðarhlutfall: Greiðslubyrði láns ÷ ráðstöfunartekjur = %
  3. Ef hlutfallið er lægra en 35% stenst þú viðmið
  4. Ef þú ert fyrsti kaupandi og hlutfallið er lægra en 40% stenst þú viðmið
  5. Ef hlutfallið er hærra þá stenst þú ekki viðmið og þarft að breyta fjárhæð láns.