Fara í efni

Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkur þann 14. maí n.k. kl. 17:30

Ársfundur sjóðsins verður haldinn þriðjudaginn 14. maí kl. 17:30 í húsakynnum Brúar lífeyrissjóðs að Sigtúni 42 í Reykjavík

 Dagskrá:

  1. Skýrsla stjórnar
  2. Ársreikningur 2018
  3. Tryggingafræðileg athugun
  4. Fjárfestingastefna sjóðsins kynnt
  5. Tilnefning stjórnarmanna og varamanna
  6. Kynning á breytingum samþykkta sjóðsins
  7. Önnur mál

Allir sjóðfélagar, fulltrúar launagreiðenda og viðkomandi stéttarfélaga eiga rétt til fundarsetu á ársfundinum. Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta á fundinn