18.04.2023			
			
			
		
							Almennt
					
	Ársfundur Brúar lífeyrissjóðs verður haldinn mánudaginn 8. maí kl. 14 í húsakynnum sjóðsins að Sigtúni 42, Reykjavík.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar
2. Ársreikningur 2022
3. Tryggingafræðileg athugun
4. Fjárfestingastefna sjóðsins kynnt
5. Tilnefning stjórnarmanna og varamanna
6. Kynning á breytingum á samþykktum sjóðsins
7. Önnur mál
Allir sjóðfélagar sem og fulltrúar launagreiðenda og viðkomandi stéttarfélaga eiga rétt til fundarsetu á ársfundinum.
 
				