Fara í efni

Ársfundur Brúar lífeyrissjóðs 2021

Ársfundur Brúar lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga verður haldinn þriðjudaginn 7. júní kl. 14.00 á starfsstöð sjóðsins að Sigtúni 42, 105 Reykjavík.

Dagskrá

  1. Skýrsla stjórnar
  2. Ársreikningur 2020
  3. Tryggingafræðileg athugun
  4. Fjárfestingastefna sjóðsins kynnt
  5. Tilnefning stjórnarmanna og varamanna
  6. Kynning á breytingum samþykkta sjóðsins
  7. Önnur mál

Allir sjóðfélagar, fulltrúar launagreiðenda og viðkomandi stéttarfélaga eiga rétt til fundarsetu á ársfundinum. Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta á fundinn en óskað er eftir að þeir tilkynni þátttöku sína á fundinn hér eða hafi samband við skrifstofu sjóðsins í síma 540-0700 eða með tölvupósti á lifbru@lifbru.is

Stjórn Brúar lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga

Skráning á ársfund