Fara í efni

Ársfundur Brúar lífeyrissjóðs 2022

Ársfundur Brúar lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga verður haldinn mánudaginn 20. júní kl. 13 í húsakynnum sjóðsins að Sigtúni 42, Reykjavík.

Dagskrá:

  1. Skýrsla stjórnar
  2. Ársreikningur 2021
  3. Tryggingafræðileg athugun
  4. Fjárfestingatefna sjóðsins kynnt
  5. Tilnefning stjórnarmanna og varamanna
  6. Kynning á breytingum á samþykktum sjóðsins
  7. Önnur mál

Allir sjóðfélagar sem og fulltrúar launagreiðenda og viðkomandi stéttarfélaga eiga rétt til fundarsetu á ársfundinum.
Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta á fundinn en óskað er eftir að þeir tilkynni þátttöku sína á fundinn hér eða hafi samband við skrifstofu sjóðsins í síma 540-0700 eða með tölvupósti á lifbru@lifbru.is

Stjórn Brúar lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga