Fara í efni

B-, R- og E- deildir: Breytt verklag við útgreiðslu orlofsuppbóta og persónuuppbóta

Frá og með 30. apríl 2026 mun Brú lífeyrissjóður breyta verklagi við útgreiðslu orlofs- og persónuuppbóta til lífeyrisþega í B, R og E deildum sjóðsins. Í stað eldra verklags þar sem uppbætur voru greiddar tvisvar á ári, að vori og fyrir jól, munu lífeyrisþegar þessara deilda sjóðsins nú fá uppbætur greiddar samhliða mánaðarlegum lífeyri, þannig að 1/12 hluti af uppbótum greiðist mánaðarlega.

Á launaseðli verður framvegis sérstakur launaliður sem heitir „Mánaðargreiðsla – Persónu- og orlofsuppbót“.

Uppsafnaðar uppbætur frá 1.janúar 2026 verða greiddar með lífeyrisgreiðslu 30. apríl 2026 og sést sú greiðsla á launaseðli undir launaliðnum „Afturvirk greiðsla – Persónu- og orlofsuppbót“. Uppbæturnar verða síðan framvegis greiddar að 1/12 hluta í hverjum mánuði.

Hægt er að hafa samband við lífeyrisdeild ef frekari upplýsinga er óskað með því að bóka tíma hér eða senda tölvupóst á lifeyrir@lifbru.is