24.11.2023			
			
			
		
							Almennt
					
	Lífeyrisaukaiðgjald í A deild Brúar lífeyrissjóðs mun lækka frá og með 1. janúar 2024 og verður þá 6,2% í stað 8,9%. Þessi lækkun er byggð á útreikningi tryggingastærðfræðings sjóðsins.
Þeir launagreiðendur sem greiða lífeyrisaukagjald þurfa því ganga frá viðeigandi stillingum í launakerfum sínum fyrir iðgjaldaskil vegna janúarmánaðar 2024 þannig að heildarmótframlag vinnuveitanda verði 17,7% (11,5% og 6,2%).
Sé frekari upplýsinga óskað er hægt að hafa samband við iðgjaldadeild sjóðsins með því að senda tölvupóst á skilagreinar@lifbru.is eða hringja í síma 540-0700.
 
				