23.09.2025
Almennt
Lífeyrisaukaiðgjald í A deild Brúar lífeyrissjóðs mun hækka frá og með 1. janúar 2026 og verður þá 6,5% í stað 6,2%. Þessi hækkun er byggð á útreikningi tryggingastærðfræðings sjóðsins.
Þeir launagreiðendur sem greiða lífeyrisaukagjald þurfa því ganga frá viðeigandi stillingum í launakerfum sínum fyrir iðgjaldaskil vegna janúarmánaðar 2026 þannig að heildarmótframlag vinnuveitanda verði 18% (11,5% og 6,5%).
Sé frekari upplýsinga óskað er hægt að hafa samband við iðgjaldadeild sjóðsins með því að senda tölvupóst á skilagreinar@lifbru.is eða hringja í síma 540-0700.