Fara í efni

Breyting á vaxtakjörum sjóðfélagalána

Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að breyta vöxtum frá og með 1. desember 2021. Breytingin á vöxtunum nær einnig til útgefinna lána en samkvæmt lögum þarf að tilkynna vaxtabreytingu með 30 daga fyrirvara og taka vextirnir því gildi á næsta gjalddaga að þeim tíma liðnum.

Verðtryggðir breytilegir vextir verða 1,5%, óverðtryggðir breytilegir vextir 4,1%, vextir á óverðtryggðum viðbótarlánum 5,1% og óverðtryggðir fastir vextir 4,9%. Sjá nánar í vaxtatöflu  hér.

Vaxtakjör nýrra lána sem eru í vinnslu hjá sjóðnum taka mið af lægri vöxtunum fram til 1. desember 2021.