12.06.2026
Almennt
Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að breyta vöxtum á fasteignatryggðum lánum sjóðsins. Breytingin tekur þegar gildi fyrir ný lán en lögum samkvæmt er tilkynnt um vaxtabreytingu útgefinna lána með breytilega vexti með mánaðarfyrirvara.
Breytingar eru eftirfarandi:
- Verðtryggðir fastir vextir verða 4,1%
- Verðtryggðir fastir vextir viðbótarlána 5,1%
- Óverðtryggðir breytilegir vextir útgefinna lána verða 8,1%
- Óverðtryggðir breytilegir vextir útgefinna viðbótarlána 9,1%.