Fara í efni

Breyting á vaxtakjörum sjóðfélagalána

Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að breyta vöxtum frá og með 1. júní 2022. Breyting á vöxtum nær einnig til útgefinna lána hjá sjóðnum með breytilega vexti en lögum samkvæmt þarf að tilkynna vaxtabreytingu með 30 daga fyrirvara og taka vextirnir því gildi á næsta gjalddaga að þeim tíma liðnum.

Verðtryggðir breytilegir vextir verða 1,3%, óverðtryggðir breytilegir vextir 5,2% og vextir á óverðtryggðum viðbótarlánum 6,2%. Sjá nánar í vaxtatöflu hér.

Vaxtakjör nýrra lána sem eru í vinnslu hjá sjóðnum taka mið af lægri vöxtunum fram til 1. júní 2022.