Fara í efni

Ný stjórn sjóðsins fyrir tímabilið 2026-2030

Þau Þorkell Heiðarsson, Gunnsteinn R. Ómarsson og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir verða áfram í stjórn sjóðsins en þau Bragi Bjarnason, Edda Björk Ragnarsdóttir og Saga Guðmundsdóttir koma ný inn í aðalstjórn sjóðsins.  Magnús Barðdal Reynisson og Sólveig Stefánsdóttir eru einnig ný inn í varastjórnina.
 
Við þessi tímamót vill sjóðurinn færa Auði Kjartansdóttur, Helgu Benediktsdóttur og Sigurði Ármann Snævarr innilegar þakkir fyrir þeirra góða og mikilvæga starf í þágu sjóðsins. Þekking þeirra, reynsla og framlag hafa verið sjóðnum dýrmæt og samstarfið farsælt og ánægjulegt.
 
Jafnframt eru fráfarandi varamönnum, Önnu Rós Sigmundsdóttur og Helga Aðalsteinssyni, færðar bestu þakkir fyrir þeirra framlag og gott samstarf.
 
Við bjóðum nýja stjórnarmenn hjartanlega velkomna og hlökkum til áframhaldandi góðs og farsæls samstarfs við stjórn sjóðsins.