Fara í efni

Breyting á vaxtakjörum sjóðfélagalána

Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að breyta vöxtum á fasteignatryggðum lánum sjóðsins. Breytingin tekur þegar gildi fyrir ný lán en lögum samkvæmt er tilkynnt um vaxtabreytingu útgefinna lána með breytilega vexti með mánaðarfyrirvara.

Breytingar eru eftirfarandi:

  • Verðtryggðir fastir vextir verða 4,1%
  • Verðtryggðir fastir vextir viðbótarlána 5,1%
  • Óverðtryggðir breytilegir vextir útgefinna lána verða 8,1%
  • Óverðtryggðir breytilegir vextir útgefinna viðbótarlána 9,1%.

Sjá nánar í vaxtatöflu