17.10.2023			
			
			
		
							Almennt
					
	Ísland tók í þriðja sinn þátt í alþjóðlegri lífeyrisvísitölu Mercer-CFA Institute. Þar var gerður samanburður á milli lífeyriskerfa 47 landa og lendir íslenska lífeyriskerfið í öðru sæti og fær einkunn A, ásamt Hollandi, Danmörku og Ísrael.
Lífeyrisvísitalan metur heildarlífeyriskerfi mismunandi landa út frá þremur meginþáttum; sjálfbærni, nægjanleika og trausti og var Ísland með A einkunn í öllum þremur meginflokkum.
 
				